Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
Karólína Lea: Þetta snýst um meira en bara fótbolta hjá þeim
Badu: Ánægður að hafa unnið leikinn svona miðað við hvernig hann spilaðist
Hafrún Rakel: Við þurfum að sýna að við erum betra lið og klára leikinn
Brynjar Björn: Svekkjandi að tapa á svona marki
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
   sun 14. júní 2015 21:26
Elvar Geir Magnússon
Óli Þórðar: Dómararnir þola oft ekki sannleikann
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Ólafur Þórðarson, þjálfari Víkings, var rekinn upp í stúku í hálfleik í leik liðsins gegn Breiðabliki í kvöld.

„Ég var ósáttur við að hann skyldi ekki dæma vítaspyrnu þegar Andri er ekki tekin niður í teignum hjá Blikunum. Það sáu það allir á vellinum en ég veit ekki hvort hann sá það ekki eða þorði ekki að dæma. Það er eitthvað sem Garðar verður að gera upp við sjálfan sig," sagði Ólafur við fjölmiðla eftir leik.

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  1 Víkingur R.

Ólafur gagnrýndi Garðar Örn Hinriksson dómara þegar flautað var til leikhlés í dag. Hann segist ekki hafa farið yfir strikið í gagnrýni sinni. „Nei, enganvegin en þeir þola oft ekki sannleikann. Maður á að fá að segja sannleikann. Er það ekki það sem fólki er innrætt í dag?"

Blikar unnu leikinn í dag 4-1 eftir að hafa komist í 2-0 í fyrri hálfleik.

„Blikarnir voru miklu grimmari og komu ákveðnir til leiks. Þeir settu á okkur tvö mörk í fyrri hálfleik sem við erum aular að verja ekki. Eftir það er róðurinn þungur."

Milos Milojevic sem þjálfar Víking með Ólafi er úti í Serbíu á þjálfaranámskeiði. Ólafur má stýra Víkingi í bikarleik gegn Aftureldingu á fimmtudag en hann verður í banni gegn Fjölni um næstu helgi. Hver stýrir Víkingi á hliðarlínunni þar? „Það kemur í ljós," sagði Ólafur sposkur.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
banner