Man Utd reynir við Mbeumo - Arsenal og City hafa áhuga á Rodrygo - Real Madrid horfir til leikmanna í ensku deildinni
   fös 14. júlí 2023 13:45
Elvar Geir Magnússon
Sá markahæsti fékk sér Aftureldingarhúðflúr beint eftir leik
Lengjudeildin
Arnór Gauti fær sér tattú.
Arnór Gauti fær sér tattú.
Mynd: Raggi Óla
Lífið leikur við Aftureldingu sem er með sjö stiga forystu á toppi Lengjudeildarinnar. Félagið hefur verið duglegt að vera með ýmsa skemmtilega viðburði í kringum heimaleiki sína.

Í síðasta leik gafst áhorfendum tækifæri til að fá sér tattú á meðan þeir horfðu á leikinn. Afturelding vann Þrótt 1-0 og er liðið enn taplaust.

Strax eftir leik stökk Arnór Gauti Ragnarsson, sóknarmaður Aftureldingar, í stólinn og lét húðflúra skammstöfun félagsins á sig.

Arnór er markahæstur í Lengjudeildinni með tíu mörk en eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var þetta alls ekki fyrsta húðflúrið sem hann fær sér.


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner