Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   mán 14. júlí 2025 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enrique óð í Pedro eftir leik og hrinti honum í jörðina - „Er ekki lúser”
Mynd: EPA
PSG tapaði gegn Chelsea í úrslitum á HM félagsliða í gær. Þetta er í annað sinn sem Chelsea vinnur þennan titil.

PSG hefur verið óstöðvandi undanfarið og vann Meistaradeildina mjög verðskuldað. Liðið átti hins vegar í miklum erfiðleikum í gær.

Það var mikill pirringur í PSG mönnum eftir leikinn og þá ekki síst Luis Enrique, þjálfara liðsins.

Hann lenti upp á kant við Joao Pedro, framherja Chelsea, og hrinti honum í jörðina.

„Ég er ekki lúser. Það eru engvir lúserar hér, við lentum í 2. sæti, það er annað. Lúserar gefast upp í lífinu," sagði Enrique eftir leikinn.


Slapp
Athugasemdir
banner
banner