Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   sun 14. september 2025 11:19
Brynjar Ingi Erluson
Vill fá meira frá Mainoo - „Sumir halda því fram að hann sé búinn“
Kobbie Mainoo
Kobbie Mainoo
Mynd: EPA
Ruben Amorim vill meira frá Mainoo
Ruben Amorim vill meira frá Mainoo
Mynd: EPA
Ruben Amorim, stjóri Manchester United, kallar eftir meiru frá enska miðjumanninum Kobbie Mainoo og telur hann að leikmaðurinn geti enn bætt leik sinn.

Á síðasta ári var Mainoo einn allra heitasti ungi leikmaður heims.

Hann var fastamaður í enska landsliðinu sem fór alla leið í úrslitaleik Evrópumótsins og vann þá enska bikarinn með Man Utd, en hann hefur þó lítið sýnt síðan Amorim tók við keflinu af Erik ten Hag.

Mainoo óskaði eftir því að fara frá United undir lok gluggans, þá helst á láni. HM er á næsta ári og vildi Englendingurinn fara annað í leit að fleiri mínútum en United kom í veg fyrir það.

Amorim segir að Mainoo þurfi að berjast fyrir sæti sínu eins og allir aðrir.

„Kannski er hann ekki vanur því að þurfa berjast fyrir sæti sínu og er óþægilegur. Hann er samt mjög góður strákur og vill læra, en stundum getur verið erfitt að fara fram á ólíka hlutu frá leikmönnum,“ sagði Amorim.

„Ég man eftir því þegar Vitinha var ekki að spila fyrir Wolves. Í dag er Vitinha líklega besti miðjumaður heims. Þannig maður veit aldrei og stundum geta hlutirnir breyst.“

„Ég er með allt aðra nálgun á leikinn en forverar mínir og þegar ég var í Portúgal horfði ég á marga leiki í ensku úrvalsdeildinni. Maður finnur það að Man Utd spilaði oft í umbreytingum. Hann var eini leikmaðurinn sem róaði leikinn niður. Núna erum við með aðra leikmenn í því.“

„Stundum býst ég við meira frá Kobbie Mainoo og stundum þegar ég mun byrja honum verður erfitt að taka hann af velli. Ég þarf að fylgja minni tilfinningu og það er eina tilfinningin. Hann byrjaði úrslitaleik EM í liði sem var með ótrúlega hæfileikaríka leikmenn eins og Phil Foden og svo Palmer sem var á bekknum. Mainoo var að spila og ég veit allt um það, en stundum sé ég leikinn öðruvísi.“

„Hann spila spila meira og það er eins með marga aðra leikmenn. Ég hef mikla trú á Kobbie, en sumir ykkar halda að hann sé búinn. Ég tel að hann geti gert miklu betur og að hann geti bætt sig töluvert. Eins og ég segi þá hef ég mikla trú á Kobbie en ég vil meira frá honum,“
sagði Amorim.

Það skal hafa í huga að Mainoo er aðeins tvítugur og á þegar 74 leiki með United í öllum keppnum. Þá hefur hann spilað 10 A-landsleiki með Englandi.
Slapp
Athugasemdir
banner
banner