Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
banner
   sun 15. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - Fimm úrvalsdeildarfélög eiga leiki
Mynd: EPA
Það eru fimm leikir í enska bikarnum í dag og mæta fimm úrvalsdeildarlið til sögu.

Öll eiga þau útileiki nema stórveldi Arsenal sem tekur á móti Wigan í lokaleik dagsins.

Leeds United, Sunderland, Wolves og Fulham eiga útileiki fyrr um daginn.

Leeds, Sunderland og Fulham heimsækja lið úr Championship deildinni á meðan botnlið ensku úrvalsdeildarinnar Wolves fer til Grimsby Town sem leikur í League Two, fjórðu efstu deild.

Jason Daði Svanþórsson er á mála hjá Grimsby en hefur verið fjarverandi síðustu þrjá mánuði.

Leikir dagsins
12:00 Birmingham - Leeds
13:30 Grimsby - Wolves
14:00 Oxford United - Sunderland
14:00 Stoke City - Fulham
16:30 Arsenal - Wigan
Athugasemdir
banner
banner