Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var hetja Inter sem vann dramatískan 3-2 sigur á Parma í Seríu A á Ítalíu í dag.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína voru báðar í byrjunarliði Inter, en Telma Ívarsdóttir sat á bekknum.
Parma fór með 1-0 forystu inn í hálfleikinn, en Inter náði að snúa taflinu við snemma í þeim síðari með tveimur mörkum á rúmum tveimur mínútum.
Heimakonur í Parma jöfnuðu leikinn fimm mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma og stefndi í jafntefli, en í uppbótartíma skoraði Karólína Lea annað deildarmark sitt og tryggði Inter sigurinn.
Þetta var fjórða mark hennar í öllum keppnum á tímabilinu og þá er hún einnig með þrjár stoðsendingar.
Inter er í öðru sæti deildarinnar með 30 stig, tveimur stigum frá toppliði Roma.
ANCORA NOOOOOOOI
— Inter Women (@Inter_Women) February 15, 2026
Vilhjálmsdóttir ci riporta in vantaggio ????@BetssonSport pic.twitter.com/ALYJ3eE5tB
Athugasemdir


