Hafnir og Álafoss rúlluðu yfir leiki sína í C-deild Lengjubikarsins í dag.
Hafnir gerðu sér lítið fyrir og skoruðu ellefu mörk á útivelli gegn Kríu á Seltjarnarnesi.
Kría réði engan veginn við gestina og þá sérstaklega ekki Reyni Aðalbjörn Ágústsson sem setti fernu. Liðsfélagar hans Jón Arnór Sverrisson og Kristófer Orri Magnússon settu sitthvora tvennuna.
Álafoss rúllaði þá yfir Uppsveitir með sjö mörkum gegn einu og þar var Alvar Auðunn Finnbogason atkvæðamestur með þrennu. Það sem meira er þá var Alvar ekki í byrjunarliðinu heldur var honum skipt inn á 57. mínútu, í stöðunni 3-1.
Fróði Brooks Kristjánsson skoraði fyrstu tvö mörk Álafoss í sigrinum stóra.
Kría 0 - 11 Hafnir
0-1 Reynir Aðalbjörn Ágústsson ('2),
0-2 Jón Arnór Sverrisson ('17)
0-3 Reynir Aðalbjörn Ágústsson ('19)
0-4 Jón Arnór Sverrisson ('36)
0-5 Reynir Aðalbjörn Ágústsson ('45)
0-6 Kristófer Orri Magnússon ('50)
0-7 Kristófer Orri Magnússon ('64)
0-8 Reynir Aðalbjörn Ágústsson ('76)
0-9 Rafn Edgar Sigmarsson ('78)
0-10 Róbert Páll Arason ('80)
0-11 Paul Kampely Sylva ('88)
Álafoss 7 - 1 Uppsveitir
1-0 Fróði Brooks Kristjánsson ('11)
1-1 Pétur Geir Ómarsson ('19)
2-1 Fróði Brooks Kristjánsson ('21)
3-1 Kári Jökull Ingvarsson ('47)
4-1 Rúben Filipe Vasques Narciso ('67)
5-1 Alvar Auðunn Finnbogason ('74)
6-1 Alvar Auðunn Finnbogason ('79)
7-1 Alvar Auðunn Finnbogason ('93)
Athugasemdir



