Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
   sun 15. febrúar 2026 18:57
Ívan Guðjón Baldursson
Mjög ánægður með Vini og Trent: Mbappé tilbúinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Álvaro Arbeloa þjálfari Real Madrid var hress eftir þægilegan 4-1 sigur gegn Real Sociedad í gær.

Vinícius Júnior fékk réttilega dæmdar tvær vítaspyrnur og skoraði úr þeim báðum til að hjálpa Real að sigra og hrósaði Arbeloa honum að leikslokum. Vinícius hefur komið að 200 mörkum með beinum hætti í 356 leikjum fyrir stórveldið.

„Vini hefur verið frábær síðan ég kom hingað, hann er einn af allra bestu leikmönnum í heimi. Hann er frábær náungi og ég er heppinn að hafa hann," sagði Arbeloa um brasilíska kantmanninn áður en hann sneri sér að Trent Alexander-Arnold, sem er nýkominn aftur eftir meiðsli og gaf laglega stoðsendingu í sigrinum.

„Trent er toppgæða leikmaður sem er að komast aftur í sitt besta form. Hann er mjög gáfaður leikmaður, hann skilur leikinn svo vel og er svona teknískur. Hann er ótrúlegur."

Kylian Mbappé var ekki með í sigri Real Madrid en Arbeloa segir hann vera tilbúinn til að byrja næsta leik gegn Benfica í Meistaradeildinni sem fer fram þriðjudagskvöldið.

„Við vildum ekki taka áhættuna með að nota hann gegn Real Sociedad en honum líður vel. Hann er tilbúinn til að vera í byrjunarliðinu gegn Benfica."
Athugasemdir
banner
banner
banner