James Trafford ólst upp hjá Manchester City frá 13 ára aldri en tókst ekki að ryðja sér leið inn í byrjunarliðið svo hann var seldur til Burnley fyrir um 15 milljónir punda sumarið 2023.
Trafford gerði flotta hluti hjá Burnley og vakti mikla athygli á sér, sem varð til þess að Man City keypti hann til baka fyrir 30 milljónir punda síðasta sumar.
Trafford tók við af Ederson sem aðalmarkvörður liðsins, en skömmu síðar losnaði Gianluigi Donnarumma óvænt frá PSG og krækti Man City í hann. Það leið ekki á löngu þar til Trafford var aftur orðinn varamarkvörðurinn.
Hann ver mark City í bikarleikjum og hélt hreinu í 2-0 sigri gegn Salford City í gær.
„Þetta var ekki það sem ég bjóst við í byrjun tímabils, en svona er raunveruleikinn. Eina sem ég get gert er að gera mitt besta," sagði Trafford að leikslokum, en hann fékk aðeins 16 mörk á sig í 45 leikjum með Burnley í Championship deildinni á síðustu leiktíð.
Trafford, sem er 23 ára gamall, yfirgaf City upprunalega til að fá meiri spiltíma og er skiljanlega svekktur með hvernig hlutir þróuðust.
Hann gerði tilkall til sætis í enska landsliðinu meðan hann var hjá Burnley en virðist ekki eiga möguleika á landsliðssæti fyrir HM þar sem hann fær engan spiltíma hjá City.
16.12.2025 18:50
Trafford fær ekki að fara frá Man City
Athugasemdir




