FCK í veseni
Midtjylland vann frábæran sigur á Nottingham Forest í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í vikunni. Liðinu var skellt á jörðina í dag þegar liðið tapaði gegn Nordsjælland í dönsku deildinni.
Daníel Ingi Jóhannesson kom inn á hjá Nordsjælland þegar tíu mínútur voru til leiksloka en þetta var fyrsti deildarleikurinn hans fyrir liðið.
Daníel Ingi Jóhannesson kom inn á hjá Nordsjælland þegar tíu mínútur voru til leiksloka en þetta var fyrsti deildarleikurinn hans fyrir liðið.
Hann gerði sér lítið fyrir og lagði upp eina mark leiksins í blálokin. Midtjylland er í 2. sæti með 46 stig eftir 23 umferðir. Liðið er fjórum stigum á eftir AGF. Nordsjælland er í 5. sæti með 34 stig.
Tímabilið hefur verið gríðarleg vonbrigði fyrir FCK en liðið er í neðri hlutanum í fyrsta sinn í háa herrans tíð. Rúnar Alex Rúnarsson var í byrjunarliðinu og fær fína einkunn fyrir frammistöðu sína þrátt fyrir 2-1 tap gegn OB. FCK er í 8. sæti með 29 stig, stigi á eftir OB en 7. sætið gefur sæti í Sambandsdeildinni.
Breki Baldursson var ónotaður varamaður í 2-2 jafntefli Esbjerg gegn Hillerod í næst efstu deild í Danmörku. Esbjerg er í 3. sæti með 36 stig.
Adam Ingi Benediktsson var í markinu hjá AB Kaupmannahöfn þegar liðið vann 2-0 sigur á Thisted í C-deildinni. AB er á toppnum með 42 stig eftir 18 umferðir.
Athugasemdir





