Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
   sun 15. mars 2026 11:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola setti upp svip: Vonandi verður konan hans ánægð í kvöld
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Man City, sló á létta strengi þegar hann var spurður út í Erling Haaland eftir jafntefli Man City gegn West Ham í gær.

Haaland fékk högg á punginn og var eðlilega þjáður eftir það og Guardiola er vongóður um að þetta hafi ekki mikil áhrif á norska framherjann.

„Vonandi verður konan hans ánægð í kvöld," sagði Guardiola sposkur á svip.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en Konstantinos Mavropanos jafnaði metin fyrir West Ham eftir að Bernardo Silva hafði komið City yfir.

Úrslitin þýða að City er níu stigum á eftir toppliði Arsenal en á leik til góða.


Athugasemdir
banner
banner