Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   sun 15. mars 2026 17:22
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Raphinha með þrennu í endurkomu Gavi
Raphinha fagnar þrennunni
Raphinha fagnar þrennunni
Mynd: EPA
Brasilíski vængmaðurinn Raphinha skoraði þrennu er Spánarmeistarar Barcelona unnu 5-2 sigur á Sevilla í 28. umferð deildarinnar í dag.

Raphinha skoraði tvö vítaspyrnu mörk á tólf mínútum. Brotið var á Joao Cancelo í teignum snemma leiks og var Raphinha ansi frakkur á punktinum og skoraði með laglegri Panenka-spyrnu.

Þetta var fyrsta deildarmark hans síðan í janúar en hann var langt í frá hættur. Hann gerði annað vítaspyrnumark nokkrum mínútum síðar og aftur var það Cancelo sem fiskaði vítið.

Í þetta sinn skoraði Raphinha með þéttingsföstu skoti í hornið.

Dani Olmo gerði þriðja markið á 38. mínútu áður en Oso minnkaði muninn stuttu fyrir lok fyrri hálfleiks. Snemma í þeim síðari fullkomnaði Raphinha síðan þrennuna með skoti sem fór af Nemanja Gudelj og í netið.

Cancelo skoraði níu mínútum síðar fimmta mark Börsunga sem var hans fyrsta síðan hann sneri aftur til félagsins.

Gavi, sem hefur verið frá vegna meiðsla síðustu sex mánuði, kom inn af bekknum á 82. mínútu. Það var ákveðin heiðursskipting fyrir Raphinha sem átti frábæran leik.

Djibril Sow klóraði í bakkann fyrir Sevilla undir lok leiks en fleiri urðu mörkin ekki og 5-2 sigur Barcelona staðreynd. Barcelona er á toppnum með 70 stig, fjórum stigum á undan erkifjendunum í Real Madrid.

Real Mallorca lenti undir en kom til baka í 2-1 sigri á Espanyol.

Charles Pickel kom gestunum í Espanyol yfir á 36. mínútu og héldu þeir í forystuna inn í hálfleikinn. Markaskorarinn sá rauða spjaldið snemma í síðari hálfleiknum og gerði liðsmunurinn útslagið.

Pablo Torre jafnaði metin á 65. mínútu og undir lok leiks gerði Samu sigurmarkið sem kom Mallorca upp í 16. sæti deildarinnar með 28 stig en Espanyol í 7. sæti með 37 stig.

Barcelona 5 - 2 Sevilla
1-0 Raphinha ('9 , víti)
2-0 Raphinha ('21 , víti)
3-0 Dani Olmo ('38 )
3-1 Oso ('45 )
4-1 Raphinha ('51 )
5-1 Joao Cancelo ('60 )
5-2 Djibril Sow ('90 )

Mallorca 2 - 1 Espanyol
0-1 Charles Pickel ('36 )
1-1 Pablo Torre ('65 )
2-1 Samu ('88 )
Rautt spjald: Charles Pickel, Espanyol ('54)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 31 26 1 4 84 30 +54 79
2 Real Madrid 31 22 4 5 65 29 +36 70
3 Villarreal 31 19 4 8 56 36 +20 61
4 Atletico Madrid 31 17 6 8 51 32 +19 57
5 Betis 31 11 13 7 45 38 +7 46
6 Celta 31 11 11 9 44 40 +4 44
7 Real Sociedad 31 11 9 11 49 48 +1 42
8 Getafe 31 12 5 14 27 32 -5 41
9 Athletic 32 12 5 15 34 45 -11 41
10 Osasuna 32 10 9 13 37 39 -2 39
11 Espanyol 31 10 8 13 37 48 -11 38
12 Girona 31 9 11 11 33 45 -12 38
13 Valencia 32 9 9 14 35 47 -12 36
14 Vallecano 31 8 11 12 29 38 -9 35
15 Mallorca 32 9 8 15 40 49 -9 35
16 Sevilla 31 9 7 15 39 51 -12 34
17 Alaves 31 8 9 14 35 46 -11 33
18 Elche 31 7 11 13 39 47 -8 32
19 Levante 31 7 8 16 35 50 -15 29
20 Oviedo 31 6 9 16 24 48 -24 27
Slapp
banner
banner
banner