Anthony Gordon, leikmaður Newcastle United, hefur svarað fyrir gagnrýni sem hann fékk frá Alan Shearer, Wayne Rooney og Roy Keane í Match of the Day á dögunum, en hann segir að spekingarnir þurfi að gera betur.
Gordon, sem er með tíu Meistaradeildarmörk á þessari leiktíð, var óvænt á bekknum gegn Barcelona í fyrri leiknum í 16-liða úrslitum keppninnar í vikunni.
Það var þó góð og gild ástæða fyrir því en Gordon hafði verið veikur nokkrum dögum fyrir leik.
Hann var klár í að byrja en Eddie Howe tilkynnti honum hins vegar að hann myndi byrja á bekknum. Gordon var ekki sáttur við það og sérstaklega ekki sáttur við gagnrýni spekinganna þriggja.
Þeir töluðu um að Gordon hafi sýnt vanvirðingu og reynt að forðast það að spila þennan leik, auk þess að hann hafi rokið inn í búningsklefa eftir leik.
„Vanalega er ég ekki mikið fyrir það að útskýra hluti því mér er yfirleitt drullu sama, en það þarf að gera það í þetta sinn því þetta var bara algjört rugl.“
„Ég sá þetta ekki en það sem fjölmiðlafulltrúinn sagði mér var ekkert nema heimska. Ég lá upp í rúmi í þrjá daga, missti af æfingum og mætti síðan á leikdegi klár í að byrja. Ég hélt að ég myndi byrja þennan leik.“
„Þegar ég mætti á leikvanginn sagði stjórinn mér að ég væri ekki í liðinu sem ég var ekkert sérstaklega hrifinn að heyra, en það er hans ákvörðun og liðið spilaði mjög vel.“
„Að segja það að ég hafi ekki viljað spila stærsta leik ferilsins er algert kjaftæði. Ég held að Rooney hafi sagt að ég hafi farið framhjá mönnum og ekki tekið í hendurnar á þeim áður en ég fór inn í búningsklefann. Það var ekki þannig.“
„Ég var aleinn að skipta um föt í klefa sem var jafn stór og þessi sem við erum í núna. Það var bara ég og vaskurinn. Þetta er nú meira kjaftæðið. Mér finnst að þeir þurfi að gera betur í þessu starfi,“ sagði Gordon.
Athugasemdir

