Ítalski leikmaðurinn Nicolo Zaniolo segist hafa þroskast mikið á síðustu árum og hafi ekki lengur efni á því að gera mistök.
Zaniolo þótti gríðarlegt efni hér árum áður og var ætlað stórt hlutverk hjá Roma þar sem hann spilaði í fimm ár en meiðsli settu strik í reikninginn og náði hann sér ekki á almennilegt flug þar.
Hann fór þaðan til Galatasaray en hefur verið lánaður fjórum sinnum síðan þá þar sem hann hefur spilað með Aston Villa, Atalanta, Fiorentina og nú Udinese.
Zaniolo segist þegar vera kominn með dýrmæta reynslu á ferlinum og að síðustu ár hafi kennt honum á lífið innan sem utan vallar.
„Það eru hæðir og lægðir á ferli hvers fótboltamanns. Ég hef glímt við tvö alvarleg hnémeiðsli. Það var erfitt og sérstaklega þegar þú meiðist tvisvar, en á svoleiðis tímum áttaði ég á mig hverjir væru sannir vinir mínir, þeir sem stóðu við bakið á mér og hjálpuðu mér bæði innan sem utan vallar. Núna er ég að spila vel og að nálgast mitt gamla form. Ég vil halda áfram og er sannfærður um að þetta sé rétta leiðin,“ sagði Zaniolo.
„Allir leikmenn finna fyrir pressu. Þú ert alltaf undir pressu í hverjum einasta leik þar sem þú þarft að halda einbeitingu í hverjum einasta leik og spila vel, en núna hef ég áttað mig á því að það mikilvægasta er að halda einbeitingu, halda draumnum lifandi og vera með markmið. Ég er á réttri braut og vil ekki hætta.“
„Ég tel mig hafa gert mistök í lífinu og viðurkenni ég það fúslega, en þau heyra fortíðinni til. Núna þarf ég að lifa fyrir daginn í dag og framtíðina. Ég vil halda áfram að sýna gæði mín og eiga í góðu sambandi við alla. Mér líður miklu meira eins og manni í dag, en hér áður var ég fremur óþroskaður og auðvelt að missa einbeitingu. Núna á ég tvö börn, konu og fjölskyldu. Ég hef þroskast og þetta er ákveðin ábyrgð. Ég get ekki gert fleiri mistök. Það er ekki lengur í boði,“ sagði Zaniolo.
Athugasemdir




