Fyrir leik Fylkis og Selfoss í Lengjudeildinni síðastliðinn föstudag var veittur styrkur úr minningarsjóði Egils Hrafns. Báðir 2. flokkar félaganna, Fylkis og Selfoss, fengu hvor um sig 250.000 króna styrk til eflingar á starfi sínu.
Egill Hrafn Gústafsson lést langt fyrir aldur fram þann 25. maí 2023. Egill elskaði fótbolta og spilaði með Fylki upp alla yngri flokkana. Egill Hrafn var líka mikill Selfyssingur, enda dvaldi hann stóran hluta uppvaxtaráranna á Selfossi hjá ömmu, afa og frændfólki sínu þar.
Í kjölfar andláts hans var stofnaður minningarsjóður til að heiðra minningu hans. Sjóðurinn hefur það að markmiði að styðja við verkefni sem hvetja ungmenni á aldrinum 16–20 ára til áframhaldandi þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi og þar er leikgleði, ást á fótboltanum og skemmtun höfð að leiðarljósi.
Egill var litríkur og skemmtilegur einstaklingur sem fór mikið fyrir. Hann sagði hlutina eins og þeir voru, hispurslaust og án fílters. Þau sem þekktu hann eiga ótal fallegar minningar um Egil og margar góðar Egilssögur sem halda áfram að verða til.
Þetta fallega framtak heldur minningu Egils Hrafns á lofti og styður við það sem Egill sjálfur brann fyrir. Knattspyrnudeildir Fylkis og Selfoss senda fjölskyldu hans innilegar þakkir fyrir þeirra ómetanlega framlag í ungmennastarfið.
Athugasemdir