Heimild: Akureyri.net
Samkvæmt fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar, sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar í gær, verður KA komið með nýjan heimavöll með gerivigrasi eftir þrjú ár.
Akureyri.net fjallar um málið en þar kemur fram að 820 milljónum króna verði varið í félagssvæðið á næstu þremur árum.
Akureyri.net fjallar um málið en þar kemur fram að 820 milljónum króna verði varið í félagssvæðið á næstu þremur árum.
„Lagður verður nýr gervigrasvöllur og byggð stúka vestan við íþróttahús KA. Það verður keppnisvöllur knattspyrnuliðs félagsins. Þá verður skipt um gervigras á vellinum sunnan við KA-heimilið. Fram kom í máli bæjarfulltrúa í gær að Akureyrarvallarsvæðið við Glerárgötu væri mjög verðmætt byggingarland og mjög gott til þéttingu byggðar. Upplýst var að verðmæti byggingarlandsins væri talið á bilinu 600 milljónir til 1,9 milljarða skv. útreikningum skipulagsstjóra bæjarins," segir í umfjölluninni.
Greifavöllurinn, núverandi heimavöllur KA, er barn síns tíma og slæmt ástand grasvallarins mikið verið í umræðunni. KA mun að öllum líkindum spila fyrstu heimaleiki sína á næsta ári á Dalvíkurvelli, líkt og liðið gerði á liðnu tímabili.
Athugasemdir