,,Þá fannst mér það í raun sjálfgefið sem næsta skref á mínum ferli"
„Ég er mjög spenntur að vera orðinn leikmaður KA og ég held að við munum eiga gott tímabil," segir Jeppe Pedersen sem skrifaði undir samning hjá KA í síðasta mánuði.
Jeppe er danskur miðjumaður sem verður 25 ára í næsta mánuði. Hann er kominn í KA eftir eitt og hálft ár hjá Vestra.
Jeppe er danskur miðjumaður sem verður 25 ára í næsta mánuði. Hann er kominn í KA eftir eitt og hálft ár hjá Vestra.
„Það sem var mikilvægast fyrir mig var leikstíllinn sem KA spilar, ég mætti þeim þrisvar á síðasta tímabili og er viss um að leikstíllinn henti fullkomlega, bæði fyrir mig og liðið. Þetta er lið sem vill spila fótbolta og það hentar mér. Þess utan heyrði ég mikið af góðum hlutum um félagið sjálft og líka bæinn."
„Það voru viðræður við önnur félög, en þegar ég heyrði að KA hefði áhuga, þá fannst mér það í raun sjálfgefið sem næsta skref á mínum ferli."
Hjá KA hittir Jeppe fyrir Diego Montiel en þeir voru liðsfélagar hjá Vestra tímabilið 2025.
„Auðvitað ræddi ég við Diego áður en ég ok ákvörðun, hann sagði hreint út að ég ætti að koma hingað. Það hjálpar auðvitað að þekkja leikmann í liðinu."
„Fyrstu vikurnar hafa verið mjög góðar, þetta er mjög gott lið, bæði hópurinn utan vallar og liðið á vellinum. Mér finnst vera góð blanda af ungum leikmönnum og reynslumeiri. Ég er orðinn spenntur fyrir komandi tímabili."
Ótrúlegur tími fyrir vestan
Jeppe kom til Vestra eftir að hafa spilað í heimalandinu. Hann kom frá Álaborg og hafði einnig leikið með Skive, Vendsyssel og Kolding á sínum ferli. Hann á að baki yfir 30 leiki fyrir yngri landslið Dana. Jeppe var spurður út í Vestra.
„Það er ekkert leyndarmál að ég og Sammi (formaður Vestra) vorum í viðræðum um mögulegt framhald, en allt á milli okkar var opið og hreinskilið. Hann sýndi því fulla virðingu þegar ég valdi KA og studdi þá ákvörðun. Kredit á hann fyrir það."
„Tími minn hjá Vestra var ótrúlegur. Það voru hæðir og lægðir í gegnum tímabilið, en ég er þakklátur fyrir að hafa verið hluti af liðinu og hafa kynnst fólkinu í kringum félagið. Ég hef bara góða hluti um félagið og bæinn að segja, jafnvel þó að það hafi stundum verið erfitt að búa á Ísafirði - sérstaklega á undirbúningstímabilinu út af veðrinu. En fólkið er ótrúlegt og ég naut þess að vera á Ísafirði."
„Ég kom í Vestra því ég vildi upplifa eitthvað allt annað. Ég vildi ná ferlinum á flug aftur og finna ástina á fótboltanum aftur. Ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun að fara í Vestra, öll augnablikin og vinasamböndin sem ég mun alltaf eiga. Ég er mjög þakklátur að hafa valið Vestra sumarið 2024."
Bilað tímabil
Hvernig lítur þú til baka á tímabilið 2025?
„Síðasta tímabil var auðvitað bilað, bæði fyrir mig og liðið. Ef einhver hefði sagt fyrir tímabilið að Vestri myndi vinna bikarinn, þá held ég að enginn hefði trúað því. Þetta var algjörlega sturlað og ég er svo stoltur af öllum hópnum og félaginu að hafa náð að afreka þetta. Fyrir mig var þetta að mínu mati gott tímabil, auka plús að hafa skorað eina markið í úrslitaleiknum. Ég er mjög þakklátur fyrir það, og já, ég hef örugglega horft á markið mjög oft ef vinir mínir eru spurðir. Þegar maður er kannski ekki í besta skapinu þá getur verið gott að horfa til baka og á markið," segir Jeppe og hlær. Hann skoraði eina markið í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í ágúst - glæsilegt skot fyrir utan vítateig.
„Tímabilið endaði auðvitað ekki eins og við hefðum vonað. Mér fannst við missa mikið af því sem við höfðum í byrjun tímabilsins þegar við vörðumst til að bjarga lífum okkar."
„Þegar ég horfi til baka þá féllum við ekki bara í síðasta leiknum, við áttum leiki þar sem við töpuðum stigum sem við hefðum ekki átt að tapa og það er kannski sem hefur truflað mig mest. En lokadagurinn var erfiður fyrir alla. Ég trúi og vona að Vestri muni koma til baka eins fljótt og hægt er því félagið og bærinn á það skilið."
Vonandi getum við gert atlögu að Evrópu
Hver eru markmiðin með KA?
„Fyrst og fremst vil ég hjálpa félaginu. En persónulega vil ég taka næsta skref á mínum ferli og þess vegna valdi ég KA. Mér finnst við passa vel saman og ég held að við getum átt gott tímabil saman! Vonandi getum við gert atlögu að Evrópusæti, liðið hefur sýnt að það getur komist á þann stað," segir Jeppe.
Athugasemdir

