Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kristófer framlengir við Þór
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristófer Kristjánsson er búinn að framlengja samning sinn við Þór og er núna bundinn félaginu næstu þrjú keppnistímabil.

Kristó lék 12 leiki í deild og bikar í fyrra en meiðsli héldu honum utan vallar stóran hluta tímabils.

Kristófer getur leikið á báðum köntum og er fæddur 2004. Hann lék tvo leiki fyrir U19 landslið Íslands.

„Við óskum Kristó til hamingju með samninginn og hlökkum til að fylgjast með honum í baráttunni næsta sumar," segir meðal annars í tilkynningu frá Þór sem vann Lengjudeildina í fyrra og leikur því í Bestu deildinni komandi sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner