Manchester United og Chelsea hafa neitað að hafa haft samband við Jurgen Klopp eftir að hann sagði upp sem stjóri Liverpool. Marc Kosicke, umboðsmaður Klopp, sagði að félögin hafi heyrt í honum.
„Meira að segja Chelsea og Man Utd spurðust fyrir um hann. En hann var mjög skýr með það að hann vildi ekki stýra öðru liði á Englandi," sagði Kosicke.
„Hann er mjög ánægður með það sem hann hefur afrekað. Það er magnað að hann verður einn af fáum stjórum í sögunni sem hefur stýrt þremur liðum og hefur aldrei verið rekinn."
Klopp starfar í dag sem yfirmaður fótboltamála hjá Red Bull.
Athugasemdir



