Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. apríl 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Inter að leggja fram tilboð í Pepe
Nicolas Pepe
Nicolas Pepe
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Inter er að undirbúa tilboð í Nicolas Pepe, leikmann Lille í Frakklandi. Þetta kemur fram í France Football í dag.

Pepe, sem er 23 ára gamall, hefur verið einn heitast leikmaður frönsku deildarinnar en hann er með 20 mörk í 35 leikjum á tímabilinu fyrir Lille.

Samkvæmt France Football þá er Pepe aðalskotmark Inter í sumar og er félagið tilbúið að borga allt að 70 milljón evra fyrir þjónustu hans.

Fílabeinsstrendingurinn er einn heitasti bitinn á markaðnum en Bayern München, Manchester United, Arsenal og Paris Saint-Germain eru öll á eftir honum.

Samkvæmt sömu frétt frá France Football eru þó viðræður hafnar milli Inter og Lille og verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála.
Athugasemdir
banner