„Við vorum bara heppnir undir lokin að missa þetta ekki niður í ósigur,“ sagði Jóhann Helgason eftir 2-2 jafntefli á Akureyrarvelli. „Fyrri hálfleikur var algjörlega frábær að okkar hálfu og það lang besta sem við höfum gert í sumar. Boltinn gekk mjög hratt manna á milli, við hefðum hæglega getað skorað fleiri mörk og vorum algjörlega með leikinn í okkar höndum. Við vorum algjörlega að yfirspila þá en svo koma þeir bara af krafti inn í seinni hálfleik, pressa okkur miklu harðar og meira en þeir gerðu í fyrri hálfleik og við gáfum eftir.“
Lestu um leikinn: KA 2 - 2 Grindavík
Jóhann átti sjálfur nokkur skot í leiknum, langaði honum svona mikið að skora?
„Auðvitað langaði mig til að skora. Ég hélt að Sandor væri orðinn svo gamall að hann næði ekki út við stöngina en hann náði í stöng og slá, það skipti ekki máli. Kallinn er ennþá einn af bestu markmönnum á landinu, það er ekki spurning.“
Nánar er rætt við Jóhann í sjónvarpinu hér að ofan.





















