Tottenham að vinna kapphlaupið um Robertson - Neymar til Bandaríkjanna? - Rogers eftirsóttur
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
Karólína Lea: Þetta snýst um meira en bara fótbolta hjá þeim
Badu: Ánægður að hafa unnið leikinn svona miðað við hvernig hann spilaðist
Hafrún Rakel: Við þurfum að sýna að við erum betra lið og klára leikinn
Brynjar Björn: Svekkjandi að tapa á svona marki
Óli Skúla: Það er vinna framundan
Sölvi Geir: Ég veit ekki hvaða rök það eru
Anton um mistökin: Gylfi sá sem maður hefði síst viljað senda á
Gylfi Sig: Í 99 skiptum af 100 fer þessi bolti langt yfir mig
Nýliðinn Linda Líf: Hann sendi á mig, ég svaraði, hann hringdi svo og lét mig vita
Sá skemmtilegasti spilar í Garðabæ - „Stjörnumenn megi alveg vera spenntir"
Yngsti aðalmarkvörðurinn í Bestu - „Erfiðir átta mánuðir"
Thelma Karen: Bjóst ekki við svona stóru hlutverki
Álitið - Hver verður skemmtilegastur í viðtölum?
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
Veit ekki hvort Blikarnir fari í rokk og ról
Óli Skúla: Erum með þrjá öfluga miðverði
Sveindís: Komið og horfið á okkur vinna Úkraínu
Fyrirliðinn á leið í sinn fyrsta leik í efstu deild - „Pressan kemur frá sjálfum mér"
Álitið - Hver er huggulegastur?
   sun 16. ágúst 2015 18:40
Arnar Daði Arnarsson
Sandra María: Verið kaflaskipt hjá okkur í sumar
Kvenaboltinn
Sanda María Jessen, leikmaður Þór/KA.
Sanda María Jessen, leikmaður Þór/KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta voru mjög góð þrjú stig sem við fengum í dag," sagði Sandra María Jessen, leikmaður Þór/KA sem var á skotskónum í dag þegar liðið gerði góða ferð í Árbæinn og vann þar 4-1 sigur á Fylki.

Lestu um leikinn: Fylkir 1 -  4 Þór/KA

Þór/KA lenti undir snemma leiks eftir þrumufleyg frá Ruth Þórðar Þórðardóttur.

„Það var alveg gegn gangi leiksins. Við byrjuðum miklu sterkari en þær en þær skoruðu úr frábæru skoti sem við áttum engan séns í. Við ákváðum að gefa ennþá meira í, eftir markið þeirra," sagði Sandra en það tók Þór/KA ekki langan tíma að jafna metin.

„Það var mjög mikilvægt að jafna snemma eftir markið þeirra. Svo þær gefi sér ekki vonir um að skora fleiri mörk. Það var því sterkt hjá okkur að ná því."

„Það gengur rosalega vel hjá okkur núna. Við erum búnar að vinna fimm leiki í röð og það er markmiðið að halda því áfram. Þetta hefur verið kaflaskipt hjá okkur í sumar. Við erum á góðri siglingu núna og ætlum að reyna halda því áfram út tímabilið," sagði Sandra sem skoraði eitt mark í leiknum og er þar með komin með tólf mörk í deildinni í sumar, tveimur mörkum á eftir markahæsta leikmanni deildarinnar, Fanndísi Friðriksdóttur.

„Ég geri mitt besta. Það sem skiptir mestu máli er að liðið vinni, þá er ég ánægð," sagði hin hógværa, Sandra María Jessen að lokum.

Viðtalið í heild sinni við Söndru Maríu er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
banner
banner