Arsenal og Man Utd vilja Adeyemi - Stórveldi á eftir miðjumanni AZ - PSG vill Vinícius á frjálsri sölu 2027 - Newcastle skoðar Trafford
Sverrir spenntur fyrir framtíðinni: Við erum með mjög gott lið
Elías Rafn: Eigum ekki að fá á okkur svona einföld mörk
Hákon Arnar: Mun taka tíma að jafna sig á þessu
Guðlaugur Victor: Trúði ekki þessari vörslu
Brynjólfur: Áfram gakk og við förum á næsta stórmót
Jón Dagur um að HM draumurinn sé horfinn: Gríðarleg vonbrigði
Ísak Bergmann: Þetta er bara okkar Króatía
Hilmar Jökull: Verðum í bullandi minnihluta en það verður fjör
Toddi: Ef við byrjum eins og í Bakú þá eigum við góða möguleika
Brynjar Björn: Öll liðin eiga möguleika á umspilssæti
Andri Lucas: Þeir sýndu aðeins meiri lit
Kristian Hlyns: Erfitt að fá byrjunarliðssæti í þessu liði
Hákon Arnar: Geggjaður gæi og geggjaður leikmaður
Ísak Bergmann: Svo auðvelt að spila með Alberti
Jói Berg: Frábært afrek fyrir mig og mína fjölskyldu
Albert: Galið hvað ég var með stórt útisvæði til að halda partí
„Rómantíkusinn í Arnari Gunnlaugssyni“
Agla María: Eigum fullt erindi í þetta lið
Þjálfari Fortuna: Því ætla ég ekki að svara
Nik: Ég hef heyrt að hann sé hræðilegur
   sun 16. nóvember 2025 19:43
Elvar Geir Magnússon
Ísak Bergmann: Þetta er bara okkar Króatía
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísland tapaði 2-0 fyrir Úkraínu í lokaleiknum í undankeppni HM og missti þar af leiðandi af umspilssæti. Strákarnir okkar verða ekki með á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.

„Ég hef aldrei verið svona svekktur. Leikplanið gekk upp. Við fáum okkar færi og markvörðurinn þeirra ver tvisvar fáránlega vel. Þetta er ótrúlega svekkjand og mér líður ekki vel," segir Ísak Bergmann Jóhannesson.

„Ef við hefðum haft heppnina með okkur í dag þá hefðum við klárað þetta. Við spiluðum taktískan góðan leik allan tímann fannst mér. Kredit á þjálfarann sem stillir okkur vel upp og okkur leið vel inni á vellinum varnar- og sóknarlega."

„Kannski er þetta okkar Króatía. Við erum búnir að tapa fyrir þeim tvisvar núna á ekki góðan hátt. Þetta er bara okkar Króatía. Það er engin spurning að við munum fara á EM 2028."



Lestu um leikinn: Úkraína 2 -  0 Ísland

Hægt er að horfa á viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner