Tuchel tekur ekki við Man Utd - Bayern og Chelsea vilja markvörðinn Verbruggen - Bayern vill Stones
   fim 12. febrúar 2026 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Velur á milli Dortmund og Real Madrid
Nico Schlotterbeck.
Nico Schlotterbeck.
Mynd: EPA
Framtíð Nico Schlotterbeck, varnarmanns Borussia Dortmund, er í óvissu en félagið og leikmaðurinn hafa komist að samkomulagi um að taka ákvörðun í landsleikjahléinu í mars. Þetta herma heimildir Sport Bild.

Samningur Schlotterbeck rennur út sumarið 2027 og er Dortmund að gera allt sem félagið getur til að fá hann til að skrifa undir nýjan og langan samning.

Dortmund er tilbúið að gefa varnarleiðtoga sínum væna launahækkun ef hann ákveður að endursemja.

En ef hann fer, þá er Real Madrid líklegasti áfangastaðurinn. Spænska stórveldið ætlar að styrkja varnarlínu sína í sumar og er Schlotterbeck á óskalistanum. Hann er örvfættur og lítur Real Madrid á það sem mikinn kost.

Valið stendur því á milli Dortmund og Real Madrid fyrir þennan öfluga miðvörð.
Athugasemdir
banner
banner