Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 15:10
Elvar Geir Magnússon
Conte kallaði dómarann typpahaus
Conte á það til að vera ósáttur við dómgæsluna.
Conte á það til að vera ósáttur við dómgæsluna.
Mynd: EPA
Aganefnd ítalska fótboltasambandsins mun líklega taka fyrir orðbragð Antonio Conte, stjóra Napoli, í garð dómarans Gianluca Manganiello.

Conte kallaði dómarann 'typpahaus' í bikarleik gegn Como í gær, þegar hann var að segja honum að fara í VAR skjáinn og skoða mögulegt rautt spjald á leikmann Como.

Gazzettan segir að dómararnir hafi ekki heyrt orðbragð Conte en það náðist á upptöku sem Sport Mediaset, rétthafi ítalska bikarsins, gaf frá sér.

Conte mun líklega fá sekt eða mögulega eins leiks bann. Í janúar var hann dæmdur í tveggja leikja bann fyrir hegðun sína á hliðarlínunni.

Leikur Napoli og Como fór í vítakeppni þar sem Como hafði betur og komst í undanúrslit bikarsins, Coppa Italia.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner