Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
   mið 11. febrúar 2026 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fyrirliði Barcelona opnar sig um andleg veikindi
Ronald Araujo.
Ronald Araujo.
Mynd: EPA
Þegar Araujo fékk rauða spjaldið gegn Chelsea.
Þegar Araujo fékk rauða spjaldið gegn Chelsea.
Mynd: EPA
Ronald Araujo, fyrirliði Barcelona sem er eitt stærsta félag í heimi, hefur opnað sig um andleg veikindi sem hann hefur glímt við. Veikindin urðu þess valdandi að hann ákvað að taka sér frí frá fótbolta í nóvember á síðasta ári.

Araujo bað um frí frá Barcelona eftir að hann fékk rautt spjald gegn Chelsea í Meistaradeildinni undir lok síðasta árs. Hann segist líða eins og öðrum manni eftir að hann áttaði sig á því að hann þyrfti aðstoð.

„Mér hafði ekki liðið vel í langan tíma. Ég var búinn að vera með kvíða í 18 mánuði og svo varð ég þunglyndur," segir Araujo í viðtali við Mundo Deportivo.

„Þú reynir að vera sterkur en mér leið ekki vel. Þegar ég fékk rauða spjaldið gegn Chelsea þá vissi ég að ég þyrfti að sækja mér hjálp."

Araujo segist líða betur núna og er hann þakklátur félaginu fyrir stuðninginn.
Athugasemdir
banner
banner