Manchester United hefur haft augastað á Pierre Kalulu og skoðað möguleikann á því að kaupa varnarmanninn í sumar.
Samkvæmt Tuttosport býst Juventus við því að njósnarar frá United mæti á leik á næstunni.
Kalulu hefur skinið skært eftir að hann kom frá AC Milan, hann kom fyrst á láni en var svo keyptur. Það gæti reynst Juventus erfitt að halda franska landsliðsmanninum þar sem United getur eflaust borgað honum betur.

Tottenham og Aston Villa hafa einnig áhuga á Kalulu sem verðu 26 ára í sumar. Hann er uppalinn hjá Lyon og getur bæði spilað sem hægri bakvörður og miðvörður.
Fyrsti og eini landsleikur Kalulu til þessa kom gegn Spáni í Þjóðadeildinni síðasta sumar.
Athugasemdir