Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 14:30
Elvar Geir Magnússon
Hurzeler þarf að sannfæra stjórnendur Brighton
Hurzeler verður 33 ára síðar í þessum mánuði.
Hurzeler verður 33 ára síðar í þessum mánuði.
Mynd: EPA
Vaxandi pirringur er meðal stuðningsmanna Brighton og sæti stjórans unga Fabian Hurzeler hefur hitnað.

Hann færist ofar á lista veðbanka yfir þá stjóra sem eru líklegastir til að verða látnir fara.

Hluti stuðningsmanna lét óánægju sína í ljós í 0-1 tapi gegn Crystal Palace um síðustu helgi. „Þú veist ekki hvað þú ert að gera“ og „Þú verður rekinn á morgun“ voru meðal kalla sem beindust að Hurzeler.

Guardian segir að stjórnendur Brighton séu ekki að ræða það að láta Hurzeler fara á þessari stundu en hann eigi verk að vinna til að sannfæra þá um að hann sé rétti maðurinn til að leiða það áfram. Staða hans verði skoðuð eftir tímabilið.

Brighton, sem situr í fjórtánda sæti, er aðeins með einn sigur í tólf síðustu úrvalsdeildarleikjum en liðið mætir Aston Villa í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner