Tímabilið er að öllum líkindum búið hjá Wilson Odobert, kantmanni Tottenham. Hann meiddist illa á hné í tapinu gegn Newcastle á þriðjudagskvöld.
Fram kemur hjá The Athletic að hann sé með slitið krossband.
Fram kemur hjá The Athletic að hann sé með slitið krossband.
Odobert, sem var keyptur til Tottenham frá Burnley árið 2024, fór af velli eftir 35 mínútur gegn Newcastle.
Odobert hefur skorað tvö mörk í 33 leikjum í öllum keppnum á þessu tímabili.
Meiðslalistinn hjá Tottenham um þessar mundir er langur en á honum eru líka James Maddison, Dejan Kulusevski, Mohammed Kudus, Lucas Bergvall, Richarlison, Rodrigo Bentancur, Pedro Porro og Destiny Udogie.
Athugasemdir




