Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
   mið 11. febrúar 2026 21:04
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikarinn: Sautján ára með tvö í sigri Skagamanna - Sjáðu mörkin
Gabríel Snær Gunnarsson.
Gabríel Snær Gunnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grótta 1 - 3 ÍA
0-1 Gabríel Snær Gunnarsson ('49)
1-1 Steinar Þorsteinsson ('53)
1-2 Grímur Ingi Jakobsson ('67)
1-3 Gabríel Snær Gunnarsson (90)

ÍA vann sinn fyrsta sigur í Lengjubikarnum í kvöld er þeir heimsóttu Gróttu á Seltjarnarnes.

Staðan var markalaus í hálfleik en í byrjun seinni hálfleiks kom Gabríel Snær Gunnarsson Skagamönnum yfir. Gabríel Snær er aðeins 17 ára en hann er sonur Gunnars Heiðars Þorvaldssonar, fyrrum landsliðsmanns. Áætlað er að Gabríel Snær, sem er stórefnilegur, fari til sænska félagsins Elfsborg í sumar.

Steinar Þorsteinsson kom ÍA í 0-2 en Grímur Ingi Jakobsson minnkaði svo muninn fyrir Gróttu. Gabríel Snær bætti hins vegar öðru marki sínu við fyrir ÍA í lokin og gulltryggði sigurinn.

Böðvar Böðvarsson, Gísli Eyjólfsson og Guðmundur Þórarinsson voru allir í byrjunarliði ÍA í kvöld.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner