Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 17:30
Fótbolti.net
Byrjendanámskeið fyrir dómara í Reykjavík og Akureyri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjendanámskeið fyrir dómara verður haldið í Reykjavík 25. febrúar og svo verður annað á Akureyri haldið daginn eftir.

Námskeiðin eru ókeypis, standa yfir í um tvær klukkustundir og eru opin öllum sem náð hafa 15 ára aldri.

Námskeiðið í Reykjavík verður í höfuðstöðvum KSÍ miðvikudaginn 25. febrúar kl 17:00. Hér er hægt að skrá sig.

Námskeiðið á Akureyri verður í sal Einingar-Iðju, Skipagötu 14, fimmtudaginn 26. febrúar kl 19:00. Skráning og upplýsingar á [email protected].

Lögð er aðaláhersla á knattspyrnulögin en auk þess verður einnig farið yfir fræðsluefni, skýringar og skýringamyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi.

Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. 100% viðvera á námskeiðinu er skilyrði.
Athugasemdir
banner
banner