Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
   sun 01. febrúar 2026 13:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gylfi Tryggva: Höfum sótt einn leikmann innanlands og það var landsliðsmaður
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Natasha samdi við nýliðana í vetur.
Natasha samdi við nýliðana í vetur.
Mynd: Stefán Marteinn
Grindavík/Njarðvík komst upp úr Lengudeildinni í fyrra.
Grindavík/Njarðvík komst upp úr Lengudeildinni í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
„Staðan er fín myndi ég segja, erum á pari. Á þessum árstíma er fámennt en virkilega góðmennt og við erum í góðum gír," segir Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, en hann ræddi við Fótbolta.net í síðustu viku.

Liðið endaði í 2. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra og verður í Bestu deildinni í sumar. Það birtust nokkrar tilkynningar um komu bandarískra leikmanna til félagsins í síðasta mánuði.

Horfa í eiginleika og karakter
„Hópurinn er ekki fullmótaður, en við erum búin að semja við fimm erlenda leikmenn fyrir tímabilið. Ein þeirra er komin, markmaðurinn, og hún er búin að vera helvíti góð," segir Gylfi sem er að fá þrjá af leikmönnunum til sín og sú fimmta kemur svo í mars. „Kjarninn er nokkuð klár og við vorum með góðan kjarna fyrir. Við erum að horfa í að stækka í hópinn, horfum í innlenda markaðinn líka, það eru örfáir leikmenn í viðbót sem við viljum bæta við til að telja okkur klár fyrir mótið."

„Það er hægt að styrkja sig á flestum stöðum, en við vinnum ekkert rosalega út frá einhverjum stöðum. Við horfum í eiginleika og þennan margfræga karakter. Maður fær oft skít frá öðrum þjálfurum fyrir að vera pæla í honum,"
segir Gylfi og brosir. „En það er bara einhver 'banter'. Við pælum bara mikið í karakternum, liðsheildin í liðinu er þannig að það myndi hafa rosalega neikvæð áhrif á okkar lið að fá ekki nógu vandaða karaktera inn í liðið. Liðsheildin er það sterk hjá okkur að við pælum ekkert síður í því."

Gylfi er á sínu öðru tímabili með liðið. Er nálgunin þennan veturinn öðruvísi en fyrir tímabilið í Lengjudeildinni 2025?

„Nei, ég hef einmitt mikið hugsað um þetta, þetta er eiginlega rosalega svipað og í fyrra. En allt einu stigi ofar, þú liggur fyrir framan tölvuna að skoða Youtube klippur fyrir áramót, ert að skoða aðeins betri leikmenn núna að jafnaði en í fyrra. Þú getur kannski sett meiri kröfur á leikmenn sem þú reynir að fá og við reynum að vera með háan staðal á þeim leikmönnum sem við erum að sækja. Á innlenda markaðnum höfum við sótt einn leikmann og það var landsliðsmaður. Við eigum eftir að bæta aðeins við hópinn."

Ætla að spila í Njarðvík
Grindavík/Njarðvík ætlar að spila leiki sína í Njarðvík. „Ég hef ekki heyrt neitt annað."

Mikil ánægja með Natöshu
Nýliðarnir kræktu í Natöshu Anasi í vetur. Hún kom frá Val en er að koma til baka eftir erfið meiðsli.

„Hún er komin af stað, er byrjuð að æfa og það er verið að trappa upp. Þetta er allt samkvæmt plani og hún er búin að koma ótrúlega sterk inn í þetta, nákvæmlega eins og við vildum að hún myndi gera. Hún er að gefa helling af sér til stelpnanna og hjálpar liðinu á allan þann hátt sem hún getur. Hún er ótrúlega mikill fagmaður og frábær í klefanum. Það er mjög raunsætt að hún verði klár í fyrsta leik í deildinni."

Hræðilegt að önnur lið séu að styrkjast
Besta deild kvenna hefst 24. apríl. Hvernig leggst deildin í Gylfa?

„Það er hræðilegt að önnur lið séu að styrkja sig," segir Gylfi á mjög léttum nótum. „Ég held að umræðan hjá flestum sé að við séum að fara sjá fram á ansi jafna deild. Ég væri alveg til í það. Umræðan er að þetta sé að þjappast, en ég þarf að sjá nokkra leiki og aðeins betri mynd á hópinn til að vera alveg viss um það. Ég er ekkert viss um að toppliðin séu að gefa eitthvað eftir, held að þau muni mæta með sterk lið og jafnvel sterkari en í fyrra. Ég sé fyrir mér skemmtilega deild, veit ekki nákvæmlega hvar við erum að fara lenda og ótrúlegt en satt pæli ekkert mikið í því frekar en í fyrra eða síðustu ár sem þjálfari. Við bara mætum til leiks, ætlum að gera okkur gildandi og vera samkeppnishæf," segir Gylfi.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Athugasemdir
banner
banner