Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 12. febrúar 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gerir nýjan samning við Stjörnuna
Bjarki í leik með Stjörnunni.
Bjarki í leik með Stjörnunni.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Knattspyrnudeild Stjörnunnar hefur framlengt samning sinn við Bjarka Hauksson.

Bjarki er fæddur árið 2006 og er hægri bakvörður en hann getur jafnframt spilað á kantinum.

Hann hefur spilað með KFG en á síðasta tímabili tók hann sín fyrstu skref með meistaraflokki Stjörnunnar.

„Ég er gríðarlega þakklátur fyrir traustið og ánægður að fá að skrifa undir nýjan samning við uppeldisfélagið. Ég er spenntur fyrir því sem fram undan er og hlakka til að vinna áfram af fullum krafti og taka næstu skref með liðinu," segir Bjarki.
Slapp
Athugasemdir
banner