Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   fim 12. febrúar 2026 22:41
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jakob Gunnar á skotskónum í sigri Lyngby
Mynd: Lyngby
Jakob Gunnar Sigurðsson gekk til liðs við Lyngby á dögunum en hann fagnaði því með því að skora í æfingaleik í dag.

Jakob var á láni hjá danska félaginu frá KR en Lyngby ákvað að festa kaup á honum. Hann spilaði gegn armenska liðinu Syunik í æfingaleik í dag.

Leiknum lauk með 2-1 sigri Lyngby og Jakob Gunnar var á markaskónum.

Lyngby er í B-deildinni í Danmörku en deildin hefst aftur 27. febrúar. Lyngby er á toppnu með 32 stig, jafn mörg stig og Hillerod eftir 18 umferðir.
Slapp
Athugasemdir
banner