Það hefur verið mikið fjallað um hinn hárprúða Frank Illett á síðustu dögum og mánuðum. Ilett, þekktur sem The United Strand, hefur hlotið heimsfrægð á samfélagsmiðlum eftir að hann gaf það út að hann myndi ekki klippa hár sitt nema ef Manchester United myndi vinna fimm leiki í röð.
Ilett streymdi frá því þegar hann horfði á 1-1 jafnteflisleikinn gegn West Ham í gær en Man Utd hafði unnið fjóra leiki í röð þegar kom að leiknum. Ilett var sár og svekktur í leikslok enda beðið í um 500 daga eftir því að losna við hárið.
Man Utd hefur ekki unnið fimm leiki í röð í meira en tvö ár núna en þau hjá One Football tóku saman hvaða lið í ensku úrvalsdeildinni hafa unnið fimm leiki í röð síðan United gerði það síðast. Þau eru ellefu talsins.
Listinn í tímaröð:
Chelsea - janúar 2026
Aston Villa - desember 2025
Man City - desember 2025
Arsenal - nóvember 2025
Liverpool - september 2025
Newcastle - apríl 2025
Wolves - apríl 2025
Crystal Palace - mars 2025
Brighton - mars 2025
Nottingham Forest - janúar 2025
Tottenham - október 2024
Athugasemdir



