Kroupi gæti farið til Liverpool - Maguire framlengir líklega við Man Utd - Villa vill Gibbs-White
banner
   mið 11. febrúar 2026 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
500. leikur enska landsliðsins spilaður á Laugardalsvelli
Kvenaboltinn
Mynd: EPA
Enska landsliðið kemur til Íslands í apríl og spilar gegn íslenska landsliðinu í undankeppni HM 2027. Það verður 500. leikur enska kvennalandsliðsins.

Spilað verður á Laugardalsvelli laugardaginn 18. apríl. Liðin eru í riðli með Spáni og Úkraínu í undankeppninni.

Ísland mætir Spáni og Englandi ytra í byrjun mars og verður landsliðshópurinn fyrir þá leiki tilkynntur næsta mánudag.

Í apríl spilar Íslands svo tvo heimaleiki; fyrst gegn Úkraínu 14. apríl og svo gegn Englandi 18. apríl.

Spánn er ríkjandi heimsmeistari eftir að hafa unnið England í úrslitaleik árið 2023. England er ríkjandi Evrópumeistari eftir að hafa unnið Spán í vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum síðasta sumar.

Fyrsti leikur enska kvennalandsliðsins var spilaður árið 1972, leikið var gegn Skotlandi. Níu árum seinna spilaði íslenska kvennalandsliðið sinn fyrsta leik, einnig gegn Skotlandi.
Athugasemdir
banner
banner