Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 13:00
Kári Snorrason
Sá sem ætlaði að vaða í Elías sektaður og fær langt bann
Leiknum lauk með 3-3 jafntefli.
Leiknum lauk með 3-3 jafntefli.
Mynd: EPA
Stuðningsmaður Íslendingaliðsins Brann sem hljóp inn á völlinn í viðureign Brann og Midtjylland í Evrópudeildinni hefur verið sektaður um rúmar 700.000 krónur frá UEFA og hefur fengið þrjátíu leikja bann frá heimaleikjum liðsins.

Atvikið gerðist fyrir tæpum mánuði síðan og ætlaði stuðningsmaðurinn að vaða í landsliðsmarkvörð Íslands, Elías Rafn Ólafsson.

Litlu mátti muna að stuðningsmaðurinn næði til Elíasar en Noah Holm, leikmaður Brann, náði að stöðva hann áður en illa færi.

„Ef Noah Holm hefði ekki stöðvað hann og maðurinn náð til markvarðar FC Midtjylland (Elíasar), hefðu afleiðingarnar getað orðið þær að við þyrftum að spila næsta leik fyrir tómum stúkum,“ segir Christian Kalvenes, framkvæmdastjóri Brann, á heimasíðu félagsins.

„Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum. Þetta snýst ekki aðeins um truflun á leiknum, þetta snýst líka um öryggi leikmannanna inni á vellinum. Við erum með öryggisverði sem eiga að gæta þeirra, en við þurfum einnig á aðstoð allra á vellinum að halda svo svona aðstæður komi ekki upp aftur,“ segir framkvæmdastjórinn jafnframt.
Athugasemdir
banner