Hólmbert Aron Friðjónsson var á skotskónum í svekkjandi jafntefli Gwangju FC gegn Gimcheon Sangmu í suður kóresku deildinni í morgun.
Hann kom liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu en Gimcheon Sangmu jafnaði metin í blálokin. Gwangju er í 3. sæti með sex stig eftir fjórar umferðir.
Hann kom liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu en Gimcheon Sangmu jafnaði metin í blálokin. Gwangju er í 3. sæti með sex stig eftir fjórar umferðir.
Jason Daði Svanþórsson var í leikmannahópi Grimsby í vikunni eftir langvarandi meiðsli en hann var utan hóps í kvöld þegar liðið vann dýrmætan 1-0 sigur á Fleetwood þar sem sigurmarkið kom í blálokin.
Grimsby er í 7. sæti D-deildarinnar með 59 stig eftir 37 umferðir. Þetta er síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í umspilinu, liðið er með jafn mörg stig og Chesterfield sem er í 8. sæti og tapaði í kvöld. Grimsby á þá einnig leik til góða.
Stockport vann 2-1 sigur á Northampton í C-deildinni en Benoný Breki Andrésson, leikmaður Stockport, er á meiðslalistanum. Stockport er í 5. sæti með 59 stig eftir 36 umferðir.
Bjarki Steinn Bjarkason var ekki í leikmannahópi Venezia þegar liðið vann Padova 3-1 í ítölsku B deildinni en hann hefur verið að berjast við meiðsli. Venezia er á toppnum með 67 stig eftir 31 umferð en liðið er með þriggja stiga forystu á Monza.
Athugasemdir



