Júlíus Mar Júlíusson var í byrjunarliði Kristiansund í sínum fyrsta deildarleik fyrir liðið en hann kom til norska liðsins frá KR í vetur.
Kristiansund fékk Brann í heimsókn en Eggert Aron Guðmundsson, Kristall Máni Ingason og Sævar Atli Magnússon eru á meiðslalistanum hjá Brann. Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliðinu, Freyr Alexandersson er þjálfari liðsins.
Kristiansund fékk Brann í heimsókn en Eggert Aron Guðmundsson, Kristall Máni Ingason og Sævar Atli Magnússon eru á meiðslalistanum hjá Brann. Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliðinu, Freyr Alexandersson er þjálfari liðsins.
Þá var Hrannar Snær Magnússon ónotaður varamaður hjá Kristiansund en hann gekk til liðs við félagið frá Aftureldingu í vetur. Hann hefur verið að kljást við meiðsli undanfarnar vikur. Leiknum lauk með 3-2 sigri Kristiansund en liðið skoraði tvö mörk undir lokin, sigurmarkið kom seint í uppbótatíma.
Kristian Nökkvi Hlynsson var í byrjunarliði Twente sem tapaði 20 gegn Utrecht í hollensku deildinni. Twente er í 5. sæti með 44 stig eftir 27 umferðir.
Stefán Teitur Þórðarson spilaði klukkutíma í dramatísku jafntefli Hannover gegn Schalke í næst efstu deild í Þýskalandi. Reynsluboltinn Edin Dzeko kom Schalke yfir en liðið var með 2-0 forystu í hálfleik.
Dzeko fékk síðan rautt spjald snemma í seinni hálfleik. Hannover nýtti liðsmuninn og skoraði tvö mörk undir lokin, 2-2 lokatölur. Hannover er í 5. sæti með 46 stig eftir 26 umferðir en Schalke er á toppnum með 51 stig.
Andri Fannar Baldursson spilaði allan leikinn þegar Kasimpasa vann 1-0 sigur á Eyuspor í tyrknesku deildinni. Kasimpasa stökk upp úr fallsæti og er í 14. sæti með 24 stig.
Gísli Gottskálk Þórðarson kom inn á sem varamaður í 1-0 sigri Lech Poznan gegn Zaglebie í pólsku deildinni. Lech Poznan er í 2. sæti með 41 stig, jafn mörg stig og Zaglebie sem er á toppnum.
Athugasemdir




