Blikinn Stefán Ingi Sigurðarson skoraði annað deildarmark sitt fyrir hollenska úrvalsdeildarfélagið Go Ahead Eagles er það rústaði NAC Breda, 6-0, í dag.
Stefán fékk tækifæri í byrjunarliðinu eftir að hafa komið inn af bekknum í síðustu leikjum og nýtti það vel.
Hann skoraði annað mark Eagles í leiknum en var síðan skipt af velli þegar stundarfjórðungur var eftir. Þá var staðan 4-0.
Alfons Sampsted var ónotaður varamaður á bekknum hjá Eagles sem eru í 12. sæti með 32 stig.
Mikael Neville Anderson var í byrjunarliði Djurgården sem tapaði fyrir nágrönnum sínum í Hammarby, 1-0, í 8-liða úrslitum sænska bikarsins
Sigurmark Hammarby kom í byrjun uppbótartíma síðari hálfleiks og því ótrúlega grátlegt fyrir Mikael og félaga sem eru úr leik.
Hjörtur Hermannsson var í vörn Volos sem tapaði fyrir Kifisia, 2-0, í grísku úrvalsdeildinni og þá kom Hörður Björgvin Magnússon inn af bekknum í fyrri hálfleik er Levadiakos tapaði fyrir PAOK, 3-0, í Thessaloniki.
Levadiakos er í 5. sæti deildarinnar með 39 stig en Volos í 9. sæti með 28 stig þegar ein umferð er eftir áður en deildinni verður skipt í þrjá hluta.
Alex Freyr Elísson byrjaði hjá NSÍ Runavík sem gerði 1-1 jafntefli við KÍ/Klaksvík í annarri umferð færeysku úrvalsdeildarinnar. Runavík er í fimmta sæti með 4 stig.
Daníel Leó Grétarsson var í vörn SönderjyskE sem gerði 1-1 jafntefli við topplið AGF. Tómas Óli Kristjánsson sat allan tímann á varamannabekk AGF sem er með 51 stig í efsta sætinu en SönderjyskE í 3. sæti með 37 stig.
Kristófer Jónsson byrjaði hjá Triestina sem tapaði fyrir Pro Vercelli, 3-2, í C-deildinni á Ítalíu. Triestina er í neðsta sæti A-riðils með 5 stig.
Lúkas Petersson stóð á milli stanganna hjá varaliði Hoffenheim sem tapaði fyrir varaliði Stuttgart, 1-0, í C-deildinni í Þýskalandi. Hoffenheim er í 15. sæti með 35 stig.
Davíð Snær Jóhannsson og Ólafur Guðmundsson komu báðir inn af bekknum í 3-1 tapi Álasunds gegn Lilleström í 1. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag og þá byrjaði Kolbeinn Birgir Finnsson hjá Vålerenga sem marði 1-0 sigur á Sandefjord.
Athugasemdir



