Robinson, Tonali og Iraola orðaðir við Man Utd - White á förum frá Arsenal? - Rudiger og Kolo Muani til Juve?
   sun 17. ágúst 2025 16:41
Brynjar Ingi Erluson
Championship: McBurnie hetjan í uppbótartíma
Oli McBurnie skoraði dramatískt sigurmark fyrir Hull
Oli McBurnie skoraði dramatískt sigurmark fyrir Hull
Mynd: Hull City
Hull City 3 - 2 Oxford United
1-0 Joe Gelhardt ('2 )
1-1 Will Lankshear ('9 )
2-1 Matt Crooks ('20 )
2-2 Cameron Brannagan ('26 )
3-2 Oli McBurnie ('90 )

Hull City náði í sinn fyrsta sigur í ensku B-deildinni á tímabilinu með dramatískum 3-2 sigri á Oxford United á MKM-vellinum í Hull í dag.

Joe Gelhardt skoraði fyrir Hull þegar tæpar tvær mínútur voru liðnar en Will Lankshear, sem er á láni frá Tottenham, svaraði sjö mínútum síðar með góðu marki.

Matt Crooks kom Hull aftur í forystu á 20. mínútu en aftur svöruðu gestirnir er Cameron Brannagan kom boltanum í netið nokkrum mínútum eftir mark Crooks.

Þegar rúmar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma keyrði Ryan Giles upp vinstra megin, kom boltanum inn á miðjan teiginn á Oli McBurnie sem tók við boltanum og negldi honum í vinstra hornið.

Laglegt sigurmark og í þetta sinn gáfu Hull gestunum í Oxford lítinn sem engan tíma til að koma til baka. Lokatölur 3-2 fyrir Hull sem er með fjögur stig eftir tvo leiki en Oxford án stiga.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 39 24 8 7 81 40 +41 80
2 Middlesbrough 39 20 11 8 59 37 +22 71
3 Ipswich Town 38 19 12 7 67 39 +28 69
4 Millwall 39 20 9 10 53 44 +9 69
5 Hull City 39 20 6 13 62 57 +5 66
6 Southampton 39 17 12 10 63 48 +15 63
7 Wrexham 39 17 12 10 60 51 +9 63
8 Derby County 39 17 9 13 56 48 +8 60
9 Watford 39 14 14 11 50 46 +4 56
10 Norwich 39 16 6 17 52 46 +6 54
11 Birmingham 39 14 11 14 48 49 -1 53
12 QPR 39 15 8 16 55 61 -6 53
13 Preston NE 39 13 13 13 45 49 -4 52
14 Swansea 39 15 7 17 44 49 -5 52
15 Stoke City 39 14 9 16 46 43 +3 51
16 Bristol City 39 14 9 16 49 50 -1 51
17 Sheffield Utd 39 15 5 19 54 54 0 50
18 Charlton Athletic 39 12 12 15 36 46 -10 48
19 Blackburn 39 11 10 18 36 49 -13 43
20 West Brom 39 11 10 18 40 54 -14 43
21 Portsmouth 38 10 10 18 37 54 -17 40
22 Leicester 39 11 12 16 51 60 -9 39
23 Oxford United 39 9 12 18 36 51 -15 39
24 Sheff Wed 39 1 9 29 24 79 -55 -6
Slapp
Athugasemdir
banner
banner