Chris Kavanagh, dómari og Nick GreenHalgh, aðstoðardómari, munu ekki dæma í úrvalsdeildinni um næstu helgi eftir skelfilega frammistöðu í 3-1 sigri Newcastle gegn Aston Villa í enska bikarnum um helgina.
Tammy Abraham kom Aston Villa yfir og markið fékk að standa þrátt fyrir að hann var greinilega rangstæður. Lucas Digne slapp við rautt spjald fyrir brot á Jacob Ramsey. Þá fékk Digne á sig aukaspyrnu fyrir að handleika boltann en hann var langt inn i teignum.
Það er ekki notast við VAR fyrr en í næstu umferð.
„Tæknin er að skapa nýjar venjur fyrir dómarana þar sem þeir sleppa því að dæma útaf því að þeir vita að VAR-teymið mun skerast inn í ef þeir misstu af stóru atviki. Þetta gerir ákvarðanatöku þeirra lélegri en hún var áður," sagði Eddie Howe m.a. eftir leikinn.
Athugasemdir




