Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 16:30
Elvar Geir Magnússon
Neymar spilaði sinn fyrsta leik eftir aðgerðina
Mynd: EPA
Brasilíska stórstjarnan Neymar lék um helgina sínar fyrstu mínútur síðan hann gekkst undir minniháttar aðgerð á hné þann 22. desember.

Neymar kom af bekknum og spilaði 50. mínútur í stórsigri síns liðs, Santos, 6-0 gegn Velo Clube. Santos komst í 8-liða úrslit Campeonato Paulista.

Neymar, sem er 33 ára og setur stefnuna á að vera með Brasilíu á HM í sumar, fór illa með gott færi í leiknum.

„Ég tel að allir þurfi á Neymar að halda. Santos og landsliðið líka. Ancelotti (landsliðsþjálfari Brasilíu) verður ánægður ef honum gengur vel. Eitt leiðir af öðru," segir Juan Pablo Vojvoda, þjálfari Santos.

Neymar hefur átt í meiðslabrasi undanfarin ár en hann er markahæstur í sögu brasilíska landsliðsins með 79 mörk.

„Hann er heimsklassa leikmaður. Hann er enn með metnaðinn. Ég sé það í hverjum leik, á hverri æfingu. Hann vill alltaf vinna," segir Vojvoda.
Athugasemdir
banner
banner