Harpa Sól Sigurðardóttir og Marta Björgvinsdóttir eru búnar að framlengja samninga sína við Fjölni til tveggja ára.
Harpa Sól er miðjumaður fæddur 2004 sem spilaði 18 leiki í deild og bikar í fyrra.
Hún er uppalin hjá Fjölni og sneri aftur til félagsins árið 2023 eftir þriggja ára fjarveru þar sem hún reyndi fyrir sér með Breiðabliki, FH og KH.
Harpa hefur leikið 57 leiki fyrir meistaraflokk Fjölnis og skorað í þeim 13 mörk. Á síðasta tímabili staðfesti hún sig sem lykilleikmann í liðinu með stöðugri og kraftmikilli frammistöðu.
„Ég er virkilega ánægður með að Harpa hafi skrifað undir nýjan samning. Hún er mikilvægur leikmaður fyrir liðið, kemur með mikla orku og jákvæðni inn í hópinn. Harpa er spennandi ungur leikmaður og ég hlakka til að sjá hana halda áfram að þróast og leggja sitt af mörkum við að ná markmiðum okkar," segir Veselin Chilingirov, betur þekktur sem Vesko, þjálfari Fjölnis.
Marta leikur einnig á miðjunni og er hún fædd árið 2003. Hún á 108 leiki að baki fyrir Fjölni og reyndist mikilvægur hlekkur í liðinu í fyrra þar sem hún spilaði 19 leiki í deild og bikar.
Marta er líka uppalin hjá Fjölni en hún kíkti yfir til Stjörnunnar/Álftaness sumarið 2024 áður en hún sneri aftur heim í fyrra.
„Það eru afar góðar fréttir fyrir okkur að Marta hafi skrifað undir nýjan samning. Hún er frábær leikmaður sem þekkir vel þau gildi sem félagið stendur fyrir og er tilbúin að leggja sig fram fyrir þau. Marta er sífellt að bæta sig og gefur okkur meiri stöðugleika á miðsvæðinu. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hún þegar mikla reynslu af meistaraflokksfótbolta og við erum sannfærð um að hún muni spila lykilhlutverk í áframhaldandi uppbyggingu liðsins," sagði Vesko.
Fjölnir endaði í fjórða sæti 2. deildar í fyrra.
Athugasemdir

