Þorvaldur Örlygsson var kjörinn formaður KSÍ á ársþingi sambandsins fyrir tveimur árum og lýkur hans fyrsta kjörtímabili á næsta ársþingi sem verður haldið á Egilsstöðum 28. febrúar.
Ljóst er að hann mun áfram sitja í formannsstólnum. Hann býður sig fram áfram og ekkert mótframboð barst en framboðsfrestur rann út á laugardag.
Ljóst er að hann mun áfram sitja í formannsstólnum. Hann býður sig fram áfram og ekkert mótframboð barst en framboðsfrestur rann út á laugardag.
Þá verður stjórn KSÍ óbreytt en Ingi Sigurðsson, Pálmi Haraldsson, Sveinn Gíslason og Þorkell Máni Pétursson bjóða sig allir fram áfram og engin önnur framboð bárust í stjórnina.
80. ársþing KSÍ verður haldið á Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum en ekki er búist við neinum stórum tíðindum þar. Aðeins þrjár tillögur liggja fyrir þinginu, þar af tvær frá stjórn KSÍ.
Athugasemdir

