Cagliari 0 - 2 Lecce
0-1 Omri Gandelman ('65 )
0-2 Ylber Ramadani ('76 )
0-1 Omri Gandelman ('65 )
0-2 Ylber Ramadani ('76 )
Lecce vann dýrmætan sigur á Cagliari í ítölsku deildinni í dag. Það var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik en Omri Gandelman kom Lecce yfir eftir rúmlega klukkutíma leik.
Ylber Ramadani innsiglaði sigur liðsins stuttu síðar.
Þórir Jóhann Helgason sat allan tímann á bekknum en hann hefur ekki verið inn í myndinni undanfarið. Hann hefur ekkert komið við sögu í síðustu sjö leikjum.
Lecce er í 17. sæti með 24 stig eftir 25 umferðir. Liðið er þremur stigum frá fallsæti. Cagliari er í 13. sæti með 28 stig.
Athugasemdir



