Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 16:10
Kári Snorrason
Sjáðu það helsta úr spænska: Real á toppinn eftir sigur gegn Orra og félögum
Vinicius skoraði tvívegis úr vítaspyrnu á laugardaginn.
Vinicius skoraði tvívegis úr vítaspyrnu á laugardaginn.
Mynd: EPA
Real Madrid vann 4-1 sigur á Real Sociedad á laugardagskvöld. Brasilíumaðurinn Vinicius Jr. fór þar á kostum en hann skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum sem hann sótti sjálfur.

Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson kom inn á um miðbik síðari hálfleiks og skoraði mark sem var dæmt af vegna rangstöðu.

Real Madrid kom sér á topp deildarinnar. Erkifjendurnir í Barcelona áttu möguleika á að endurheimta toppsætið en það mistókst er liðið tapaði óvænt gegn Girona í gærkvöldi.

Sjáðu það helsta úr spænska boltanum í markapakka Livey frá 24. umferð.




Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner