Chelsea og Liverpool gætu gert tilboð í Murillo - Liverpool og Bayern hafa áhuga á Diomande - Pulisic aftur til Englands?
   mán 16. febrúar 2026 09:36
Kári Snorrason
Fyrrum leikmaður Liverpool ákærður fyrir líkamsárás
Mynd: EPA
Jordon Ibe, fyrrum leikmaður Liverpool, var handtekinn á Luton-flugvelli í London og ákærður vegna gruns um líkamsárás.

Ibe, sem er nú þrítugur, var handtekinn þann 30. janúar eftir að hafa flogið heim frá Búlgaríu, þar sem hann spilar nú með Lokomotiv Sofia.

Meint brot er sagt hafa átt sér stað í desember. Ibe hefur þó verið látinn laus gegn tryggingu en á að koma fyrir dómara í Englandi þann 6. mars.

Ibe þótti gífurlega efnilegur kantmaður á unglingsárum og var fastamaður í yngri landsliðum Englands, auk þess að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu hjá Liverpool tímabilið 2015-16.

Fyrir um tveimur árum lagði hann skóna tímabundið á hilluna og ræddi opinskátt um baráttu sína við þunglyndi.

Hann dró þó fram skóna aftur á síðasta ári og byrjaði að spila fyrir utandeildarlið Hayes & Yeading United og Hungerford Town. Fyrir um þremur mánuðum gekk hann svo til liðs við Lokomotiv Sofia, þar sem hann leikur nú og er samningsbundinn út tímabilið 2027.
Athugasemdir
banner
banner