Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
banner
   sun 15. febrúar 2026 22:08
Elvar Geir Magnússon
Hafa tíma til 10. nóvember til að ganga frá sameiningu
Lengjudeildin
Frá kynningarfundi í félagsheimili ÍR.
Frá kynningarfundi í félagsheimili ÍR.
Mynd: Kári Snorrason
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Sameiningarviðræður hafa verið í gangi milli Leiknis og ÍR í Breiðholti. Viðræðurnar ganga út frá að nýtt fótboltafélag myndi bera nafnið Breiðholt og taka þátt í öllum flokkum í karla- og kvennaflokki.

Fyrir ársþing KSÍ, sem haldið verður eftir tæpar tvær vikur, hefur verið lögð fram tillaga sem snýr að sameiningunni.

Mótanefnd KSÍ hefur gefið umsögn um tillöguna en að mati hennar þarf stofnun félagsins að vera lokið tímanlega fyrir 10. nóvember svo nýtt félag geti tilkynnt þátttöku í mótin á næsta ári, 2027. Í því samhengi að þá liggi jafnframt fyrir samþykkt ÍBR og ÍSÍ um stofnun félagsins.

Ekki er enn ljóst hvort þetta nýja sameinaða Breiðholtsfélag verði að veruleika en Leiknir og fótboltadeild ÍR hafa ritað undir viljayfirlýsingu um stofnun þess.

Tillagan sem félögin hafa lagt fyrir ársþing KSÍ er sú að Breiðholt myndi þá taka stöðu þess liðs sem endar ofar í lok tímabilsins 2026.

„Það er ljóst að til þess að af þessari sameiningu geti orðið verður að liggja fyrir samþykki ársþings um stöðu hins nýja félag í deildarkeppnum árið 2027. Það liggur svo í hlutarins eðli að betra er að aðildarfélög KSÍ vita af þessum umleitunum fyrir keppnistímabilið 2026 og hvaða mögulegu áhrif þær gætu haft á stöðu annara félaga," segir í tillögunni.

Fram kemur að vinnan snúist meðal annars að því að auka íþróttaþátttöku barna í Breiðholti, efla allt afrekstarf, alla umgjörð og aðbúnað fótboltans í hverfinu. Síðast en ekki síst að sameina eitt stærsta hverfi landsins í stuðningi, samkennd og samfélagi
sem eina heild.

Meistaraflokkar karla hjá Leikni og ÍR leika báðir í Lengjudeildinni. Leiknir hefur ekki sent kvennalið til keppni í meistaraflokki síðan árið 2019, en kvennalið ÍR leikur í 2. deild.
Athugasemdir
banner