Man Utd íhugar að reyna við Mac Allister hjá Liverpool - Arsenal hefur áfram áhuga á Williams - Napoli vill ekki missa McTominay
   þri 17. febrúar 2026 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Gott að stjóri í úrvalsdeildinni hafi verið hræddur við okkur"
Keith Andrews, stjóri Brentford.
Keith Andrews, stjóri Brentford.
Mynd: EPA
Brentford vann nauman sigur á Macclesfield í gær og þar með lauk bikarævintýri utandeildarliðsins.

Þetta var bragðdaufur leikur en sjálfsmark hjá Sam Heathcote skildi liðin að. Macclesfield náði mögnuðu afreki í síðustu umferð þegar liðið vann ríkjandi bikarmeistara Crystal Palace.

Keith Andrews, stjóri Brentford, var mjög hrifinn af Macclesfield og hann ákvað að fara inn í klefa liðsins eftir leikinn til að hrósa liðinu.

„Flott hjá úrvalsdeildarstjóra að gera þetta. Það sýnir að bilið er ekkert endilega stórt. Við ættum að vera stoltir af okkur, þetta bikarævintýri stækkar félagið á landsvísu og það er gott að stjóri í ensku úrvalsdeildinni hafi verið hræddur við okkur," sagði Danny Elliott, framherji Macclesfield.


Athugasemdir
banner
banner
banner